Um Bílsýn
Bílsýn er sjálfstæð bílasala stofnuð af Javier Enrique og rekin með áherslu á fagmennsku og persónulega þjónustu. Við sérhæfum okkur í kaup og sölu á notuðum bílum, fjármögnun og ráðgjöf við bílaviðskipti fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við bjóðum jafnframt upp á faglega ljósmyndun ökutækja og markvissa kynningu þeirra á helstu sölumiðlum til að tryggja sem besta framsetningu og aukna sölumöguleika. Markmið okkar er að gera bílaviðskipti einfaldari, öruggari og gagnsærri og byggja upp langtímasambönd við viðskiptavini á grundvelli trausts og fagmennsku.
Verðskrá
Söluþóknun er 4,2% af söluverði bifreiðar yfir kr. 1.650.000 að viðbættum virðisaukaskatti, kostnaði vegna veðbókarvottorðs og umskráningargjaldi.
Frágangsgjald er 39.900 kr.
Öll gjöld eru birt með fyrirvara um breytingar samkvæmt gildandi gjaldskrám og opinberum gjöldum.
Skoðunarskylda
Á kaupanda bifreiðar hvílir rík skoðunarskylda samkvæmt lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup.
Bílsýn er milliliður í viðskiptum seljanda og kaupanda og ber ekki ábyrgð á seljanda eða efndum skyldna hans samkvæmt lögum eða samningum.
Fyrirvari
Upplýsingar á vefsíðu Bílsýnar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur, verðbreytingar, breytingar á búnaði, myndum og tæknilegum upplýsingum.
Myndir af ökutækjum eru til leiðbeiningar og geta sýnt aukabúnað sem ekki fylgir viðkomandi ökutæki.
Bílsýn ábyrgist ekki að allar upplýsingar séu villulausar og áskilur sér rétt til að leiðrétta upplýsingar án fyrirvara.
Öll verð og upplýsingar á vefsíðunni eru birt með fyrirvara um breytingar og gilda eingöngu þegar skrifleg staðfesting liggur fyrir.
Rekstraraðili
Bílsýn er vörumerki og viðskiptanafn í eigu og rekstri FONDO ehf.
Kennitala: 521213-1030
Heimilisfang: Hamarshöfði 1, 110 Reykjavík